Lyngás 1, 210 Garðabær
78.900.000 Kr.
Fjölbýli
4 herb.
100 m2
78.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2019
Brunabótamat
60.560.000
Fasteignamat
75.250.000

STOFAN fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða 4 herbergja íbúð á 3.hæð (efstu) í lyftuhúsi við Lyngás 1h, Garðabæ.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 100,1 fm (íbúð 304) - aukin lofthæð er í íbúðinni.
Sér stæði í bílageymslu fylgir.


Eignin skiptist í forstofu, gang/hol, þrjú svefnherbergi, stofu/borðstofu, eldhús og baðherbergi.
Sérgeymsla er staðsett í sameign.


Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp, harðparket á gólfi.
Gangur/hol með harðparketi á gólfi.
Eldhús er opið og bjart, falleg innrétting, bakarofn í vinnuhæð, helluborð og háfur, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur, harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Útgengt er úr stofu út á svalir (suðvestur).
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, harðparket á gólfi.
Tvö rúmgóð herbergi, bæði með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, falleg innrétting, upphengt salerni, sturta með gleri, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er staðsett i sameign.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Sérstæði í bílageymslu fylgir eigninni.

Þetta er björt og falleg eign í nýlegu húsi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, stofnæðar, verslanir og aðra þjónustu.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected] og Atli Þór í síma 699-5080, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.