*EIGNIN ER SELD*
STOFAN kynnir fallegt endaraðhús á einni hæð með bílskúr við Kvistavelli 16, Hafnarfirði.
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 144,9 fm, þar af er bílskúr 31 fm.Komið er inn í flísalagða
forstofu með góðum fataskápum.
Inn af forstofu er innangengt í rúmgóðan
bílskúr, rafmagnsopnun á hurð, epoxy á gólfi.
Geymsla er inn af bílskúrnum með góðum hillum.
Forstofuherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi, harðparket á gólfi.
Gangur / hol, harðparket á gólfi.
Þvottahús er með fallegri innréttingu, flísar á gólfi.
Eldhús er bjart og fallegt með fallegum innréttingum, gler á milli skápa, bakarofn í vinnuhæð, helluborð, vifta, innbyggð uppþvottavél, steinn á borði, harðparket á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð, harðparket á gólfi. Úr stofu er útgengt út á góða verönd, fallegur og frágenginn garður.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting, sturta með gleri, upphengt salerni og handklæðaofn.
Hjónaherbergi er bjart og rúmgott, harðparket á gólfi.
Fataherbergi er vel skipulagt með góðum fataskápum, harðparket á gólfi. (Á teikningum sem svefnherbergi, auðvelt að breyta því tilbaka).
HIti er í gólfi.
Hellulagt bílaplan með hita.
Sólbekkir úr stein í eldhúsi og í forstofu.
Þetta er einstaklega falleg og björt eign á einni hæð með mikilli lofthæð og góðu aðgengi, rúmgott bílastæði fyrir framan hús.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.