*SELD*
STOFAN kynnir fallegt og mikið endurnýjað endaraðhús með bílskúr við Álfholt 38, Hafnarfirði.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 208,6 fm, þar af er bílskúr 23 fm.**Fallegt og rúmgott fjölskylduhús*** 4 svefnherbergi
* Fataherbergi
* Stórt og rúmgott þvottahús
* Rúmgóð stofa
* Fallegt eldhús
* Baðherbergi og gestasalerni
* Bílskúr
* Fallegur gróinn garður í kringum húsið*Fasteignamat árið 2022 verður 76.350.000 kr*
Efri hæð:
Komið er inn í flísalagða
forstofu, handklæðaofn og hiti í gólfi.
Gestasalerni er inn af forstofu, flísar á gólfi, falleg innrétting, upphengt salerni, hiti í gólfi.
Gangur/hol með harðparketi á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Útgengt er út á svalir frá borðstofu.
Sjónvarpshol er inn af stofunni sem er einnig rúmgott, harðparket á gólfi.
Eldhús er bjart og rúmgott, falleg hvít innrétting, fibo trespo plötur á milli skápa, bakarofn í vinnuhæð, einnig örbylgjuofn/bakarofn, helluborð og háfur, tengi fyrir uppþvottavél, harðparket á gólfi.
Bílskúr er með rafmagnsopnun, heitt og kalt vatn.
Neðri hæð:
Gengið er niður teppalagðan stiga á neðri hæð.
Hjónaherbergi er rúmgott þar sem útgengt er út á verönd.
Þrjú góð barnaherbergi, fataskápur í einu þeirra og harðparketi á gólfum.
Fataherbergi er á hæðinni, harðparket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hvítar innréttingar, mjög gott skápapláss, upphengt salerni, sturta og baðkar.
Þvottahús er einstaklega rúmgott með góðum skápaplássi, flísar á gólfi.
Inn af þvottahúsi er aukarými sem er ekki skráð inn í fermetratölu hússins með skápum á veggjum og flísum á gólfi. Útgengt út í garð.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðasta ári:
Ný gólfefni allstaðar nema á þvottahúsi og baðherbergi á neðri hæð.
Settur gólfhiti í forstofu og gestasalerni.
Eldhúsinnrétting er nýsprautuð, nýr háfur, helluborð og bakarofn, fibo trespo plötur settar á milli skápa í eldhúsi.
Nýjar innihurðir.
Nýtt teppi á stiga.
Nýtt gólf á verönd bakvið hús.
Þetta er fallegt og fjölskylduvænt hús í góðu hverfi þar sem stutt er í skóla og leikskóla.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.