*EIGNIN ER SELD*
STOFAN kynnir bjarta og fallega 4 herbergja íbúð á jarðhæð við Vesturberg 100, Reykjavík.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 106,4 fm.Komið er inn í rúmgott
hol / forstofu með fataskápum, parketflísar á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð, plastparket á gólfi. Útgengt er úr stofu út á stóra afgirta verönd sem snýr í vestur.
Eldhús er opið og bjart með fallegri hvítri innréttingu, flísar á milli skápa, bakarofn í vinnuhæð, helluborð, háfur, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, parketflísar á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og upp á veggi, ljós innrétting, upphengt salerni, baðkar með sturtu, tengi fyrir þvottavélar. Hiti í gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með nýlegum fataskápum, plastparket á gólfi.
Tvö rúmgóð barnaherbergi, annað með nýjum fataskáp, plastparket á gólfi.
Sérgeymsla með hillum (7,6 fm) er staðsett í sameign á sömu hæð og íbúðin.
Sameiginlegt
þvottahús / þurrkherbergi er einnig á hæðinni ásamt
hjóla-/vagnageymslu.
Sameignin er mjög snyrtileg.
Samkvæmt seljanda:
Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjað árið 2015 (innrétting frá HTH).
Parketflísar settar á gólf í eldhúsi og holi árið 2015.
Fataskápur í hjónaherbergi árið 2015 (frá HTH).
Fataskápur í barnaherbergi árið 2021 (frá HTH).
Blöndunartæki á baðherbergi endurnýjuð árið 2015.
Ný svalahurð / hurð út á veröndina október 2021.
Nýlegir dyrasímar og póstkasssar.
Þetta er björt og falleg eign á góðum og fjölskylduvænum stað sem hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum þar sem skólar, leikskólar, framhaldsskóli og verslanir eru í göngufæri.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.