SELD
STOFAN kynnir bjarta og fallega 3 herbergja íbúð með miklu útsýni á 3.hæð (efstu) við Hallakur 4a, Garðabæ.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 116,3 fm.Komið er inn í
forstofu með góðum fataskáp, harðparket á gólfi.
Gangur / hol með harðparketi á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð, harðparket á gólfi. Útgengt er úr stofu út á svalir með fallegu útsýni.
Eldhús er með góðri innréttingu, bakarofn í vinnuhæð, helluborð, háfur og tengi fyrir uppþvottavél, granít á borðum, harðparket á gólfi.
Þvottahús er með flísum á gólfi, hvít innrétting, vaskur, hiti í gólfi.
Baðherbergi með fallegri innréttingu, granít á borði. Flísar á gólfi og veggjum, baðkar, sturta og upphengt salerni.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi einnig rúmgott með harðparketi á gólfi.
Sérgeymsla er í sameign á jarðhæð.
Sameiginlega
hjóla- og vagnageymsla einnig í sameign á jarðhæð.
Sameignin er einstaklega snyrtileg - nýleg teppi í stigagangi.
Þetta er björt og falleg eign í viðhaldslitlu húsi á besta stað í Garðabæ þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og stofnæðar.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected] eða Atli Þór í síma 699-5080, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.