Stofan fasteignasala kynnir bjarta og rúmgóða neðri sérhæð með bílskúr við Blómvang 8, Hafnarfirði.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 158,3 fm, þar af er bílskúr 27 fm.Komið er inn í flísalagða
forstofu með góðum fataskápum.
Gangur / hol með parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er úr borðstofu á svalir og út í garð.
Eldhús er með viðarinnréttingu, flísar á milli skápa, helluborð, vifta, bakarofn, tengi fyrir uppþvottavél, korkur á gólfi.
Þvottahús / búr er inn af eldhúsi.
Hjónaherbergi er með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Tvö svefnherbergi, bæði með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi með viðarinnréttingu, baðkar, sturta, salerni, flísar á gólfi.
Rúmgóður
bílskúr, heitt og kalt vatn.
Góð
geymsla er inn af bílskúr.
Húsið var múrviðgert árið 2021 og svalir múraðar.
Þetta er björt og falleg eign á góðum stað í Norðurbæ Hafnarfjarðar þar sem skólar, leikskólar, verslanir og önnur þjónusta eru í göngufæri.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected] og Atli Þór í síma 699-5080, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 64.900 m.vsk.