Mýrargata 2, 220 Hafnarfjörður
79.900.000 Kr.
Hæð
4 herb.
148 m2
79.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1950
Brunabótamat
62.120.000
Fasteignamat
77.250.000

Eignin er seld með fyrirvara

Stofan fasteignasala kynnir bjarta og rúmgóða 4 herbergja hæð í þríbýli með bílskúr við Mýrargötu 2, Hafnarfirði.
Eignin er skráð 148,1 fm, þar af er bílskúr 24,5 fm.

Fallegt útsýni yfir sjóinn og víðar.

Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskápum. Innangengt er úr forstofu í sameign á neðri hæð.
Gangur/hol með parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi
Eldhús er opið inn í stofu, viðarinnrétting, eyja með spanhelluborði, bakarofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi. Útgengt er úr eldhúsi á svalir.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Tvö herbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi með innréttingu, handlaug, salerni og baðkari, flísar á gólfi.
Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð.
Bílskúr, rafmagn, heitt og kalt vatn.
Sameiginegur gróinn garður umhverfis húsið.

Þetta er björt og góð eign miðsvæðis í Hafnarfirði þar sem skólar, verslanir, miðbærinn og fleira er í göngufæri.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected] og Atli Þór í síma 699-5080, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.