Fífuhjalli 21, 200 Kópavogur
179.900.000 Kr.
Einbýli
6 herb.
285 m2
179.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1990
Brunabótamat
131.200.000
Fasteignamat
161.350.000

EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA

STOFAN fasteignasala kynnir glæsilegt og vel staðsett einbýlishús á einstökum stað neðst í Suðurhlíðum Kópavogs. Húsið er staðsett fyrir neðan götu næst innst í botnlanga
við grænt opið útivistarsvæði. Fallegt útsýni, gróinn og skjólgóður suður garður.
Aukaíbúð hefur verið útbúin í bílskúr.


Efri hæð skiptist í forstofu, hol, gestasalerni, herbergi, eldhús, stofu og borðstofu
Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskápum.
Hol með parketi á gólfi.
Inn af holi er gestasalerni, góð innréting og salerni, flísar á gólfi og veggjum.
Eldhús er með fallegri innréttingu, flísar á mili skápa, borðkrókur,  búr/tækjaskápur, bakarofn og combi ofn í vinnuhæð, uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur sem fylgir, helluborð og vifta, granít á borðum.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með fallegu útsýni, parket á gólfi. Útgengt er úr stofu á rúmgóðar svalir sem snúa út í garð.
Inn af stofu er herbergi með parketi á gólfi.
Gengið er niður fallegan parketlagðan stiga á neðri hæð hússins.

Neðri hæð skiptist í sjónvarpshol, gang/hol, 4 herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu
Sjónvarpshol með parketi á gólfi.
Parketlagður gangur þar sem útgengt er í garðinn.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Rúmgott herbergi með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Tvö önnur góð herbergi, bæði með parketi á gólfum. Búið að opna á milli herbergjanna og auðvelt að breyta tilbaka.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góð innrétting, baðkar, sturta og salerni.
Þvottahús með góðum innréttingum og skápum, flísar á gólfi. Útgengt úr þvottahúsi á verönd.
Inn af þvottahúsi er rými sem gert er ráð fyrir að útbúa baðherbergi þar sem búið er að setja tengingar fyrir salerni, sturtu og vask.
Geymsla með flísum á gólfi.

Í bílskúr hefur verið útbúin íbúð sem hefur verið í útleigu - útbúin 2019 þar sem sett var nýtt baðherbergi, eldhús og gólfefni.
Innréttingar í eldhúsi og baðherbergi á neðri hæð voru sprautulakkaðar árið 2020.
Skipt var um innihurðir árið 2017.
Upphitað hellulagt bílaplan.
Fallegur garður og rúmgóð afgirt verönd með heitum potti.


Þetta er einstaklega fallegt og bjart hús á rólegum og skjólgóðum stað í Kópavogi.
Stutt er í skóla, verslanir og aðra þjónustu.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected] og Atli Þór í síma 699-5080, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.