Opið hús: 24. nóvember 2024 kl. 13:00 til 13:30.
Opið hús sunnudaginn 24.nóvember frá kl 13:00-13:30
Vinsamlegast staðfestið komu á opna húsið á [email protected]
STOFAN FASTEIGNASALA kynnir fallegt 229m² einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Jónsgeisla 51, Grafarholti.
Húsið sem nýtur mikils útsýnis er afskaplega bjart og smekklegt með afgirtu hellulögðu útisvæði til suðurs.
Sérinngangur er á neðri hæð á hlið hússins.
Stutt er í alla helstu þjónustu.Efri hæð: Bílskúr, forstofa, gestasalerni, stofa, borðstofa og eldhús.
Neðri hæð: Þrjú rúmgóð herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Innfelld lýsing í lofti í öllu húsinu.Flísar á öllum rýmum og hiti í gólfi.Léttir veggir og lagnir á neðri hæð bjóða upp á að hægt sé að
breyta herbergjaskipan og bæta við baðherbergi.Efri hæðKomið er inn í flísalagða
forstofu.
Bílskúr 27.9 m² er innangengur úr forstofu.
Gestasalerni er snyrtilegt með lítilli innréttingu, upphengt salerni.
Eldhús er bjart, rúmgott og opið með hvítri innréttingu og ljósum steini á borðum. Bakarofn í vinnuhæð, gaseldavél, háfur, innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með útsýni yfir m.a. Úlfarsárdal, Esju og til sjávar. Útgengt er úr stofum á svalir.
Pallur: Útgengt er á sólpall frá borðstofu en frá honum nýtur einnig mikils útsýnis.
Neðri hæð:3 rúmgóð herbergi sem skiptast í:
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Vinnustofa stór og björt með sérinngangi frá hlið hússins. Útgengt er úr herberginu út á pall og garð.
Svefnherbergi stórt og bjart með gluggum á þrjá vegu..
Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum, sturtu, upphengdu salerni, baðkari og handklæðaofni.
Þvottahús og geymsla þvottahús með vaski, innréttingu og geymslu innaf.
Léttir veggir og lagnir á neðri hæð ásamt sérinngangi gera það mögulegt að breyta herbergjaskipan og bæta við baðherbergi.
Þetta er fallegt hús á vinsælum stað í Grafarholtinu. Stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita
Atli Þór í síma
699-5080,
[email protected] og
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.